Gröftur og jarðvinna
Uppgröftur, jarðvegsskipti og fyllingar, þjappaðar í lögum svo undirstaðan haldi.
- Uppgröftur
- Jarðvegsskipti
- Fyllingar
Gröfuvinna, veituframkvæmdir, lagnaskurðir og grunnvinna. Fyrir einstaklinga, húsfélög og verktaka.
Við tökum að okkur afmarkaða verkþætti eða sjáum um jarðvinnuna í heild sinni, í samstarfi við aðalverktaka, hönnuði og veitufyrirtæki.
Uppgröftur, jarðvegsskipti og fyllingar, þjappaðar í lögum svo undirstaðan haldi.
Gröftur fyrir heimtaugar og lagnir að vatni, fráveitu, hitaveitu, rafmagni og ljósleiðara.
Skurðir að réttri dýpt og halla, með söndun og frágangi yfir lögnum.
Gröftur niður að sökkli fyrir nýja eða endurnýjaða drenlögn, og mokað aftur að.
Undirvinna, jarðvegsskipti og hellulögn fyrir innkeyrslur, bílaplön og verandir.
Gröftur fyrir sökkla og grunna, undirstöður palla, heita potta og jöfnun lóða.
Lýstu verkinu fyrir okkur og við förum yfir hvaða leið hentar best. Við tökum líka að okkur verkstjórn og undirverktöku.
Hafa sambandVeldu verkið, settu inn umfangið og fáðu verðhugmynd strax. Þetta er áætlun en ekki bindandi tilboð. Endanlegt verð fer eftir aðstæðum á staðnum.
Reiknivélin áætlar hve langan tíma gröfa og gröfumaður þurfa í verkið út frá rúmmáli og afköstum smágröfu, og leggur við flutning á tækjum, efni og akstur vörubíls.
Afköstin byggja á almennum viðmiðum fyrir 3 tonna gröfu: skófla tekur um 0,06–0,09 m³, ein umferð tekur 12–18 sekúndur og raunnýting er um 45–50 mínútur á klukkustund. Við lagnaskurði er gert ráð fyrir um 5–6 m³ á klukkustund í venjulegum jarðvegi, og hægar þegar unnið er þétt upp við hús.
Jarðvegur og aðgengi breyta afköstunum. Leir og grjót hægja á verkinu og þröngt aðgengi kallar á fleiri tilfærslur á vélinni.
Efni er reiknað í tonnum út frá rúmmáli: sandur undir lagnir og hellur, burðarlag í fyllingar og drenmöl við drenlagnir. Verð á efni miðast við verðskrá P. Blöndal og listaverð Steypustöðvarinnar. Hver ferð vörubíls tekur allt að 15 tonnum af efni eða 10 m³ af uppgreftri.
Verðhugmyndin er sýnd sem bil frá 90% upp í 130% af útreiknuðu verði, því aðstæður eru aldrei alveg eins og á blaði. Förgunargjöld á losunarstað, lagnaefni og hellur eru ekki innifalin.
Einfalt ferli og skýr samskipti frá fyrsta símtali. Þú veist alltaf hvar verkið stendur.
Þú hringir eða sendir línu með staðsetningu og stuttri lýsingu.
Við skoðum aðstæður, aðkomu og umfang verksins.
Þú færð skýrt verð, fast tilboð eða tímavinnu.
Verkið unnið á umsömdum tíma og skilað snyrtilegu.
Íslenskt verktakafyrirtæki í jarðvinnu og gröfuþjónustu þar sem áreiðanleiki, gæði og skilvirk framkvæmd eru í fyrirrúmi.
Hagnýt þekking af vinnusvæðinu sem skilar sér í réttum ákvörðunum.
Við mætum á réttum tíma og látum vita strax ef eitthvað breytist.
Rétt dýpt, réttur halli og vandaður frágangur.
Gott skipulag heldur kostnaði niðri og verkinu á áætlun.
Hringdu, sendu póst eða fylltu út formið. Við svörum með verði eða símtali.